Post
Sænska þýðingin komin upp...að mestu
Nú er búið að setja sænsku þýðinguna á vefinn...svona að mestu. Það gerðist nefnilega í millitíðinni, frá því að við létum þýða efnið og þar til núna, að við "droppuðum" áskrift sem hét kynlífsbloggari og breyttum henni yfir í Afþreyjanda, á ensku Entertainer. Fyrir vikið þarf að þýða nokkra hluta vefsins upp á nýtt, og líka nokkrar setningar hér og hvar sem hafa breyst undanfarið í þeirri merkilegu þróun sem hefur átt sér stað. En þetta kemur smátt og smátt - okkur er að lærast að flýta okkur hægt, og hlutirnir taka bara sinn tíma alveg sama hvað við sprikklum eða býsnumst.
Svo þegar búið er að kippa þessum nokkru sænsku setningum í liðinn þá langar okkur að fá íslending sem er prýðilega sænskumælandi, lesandi og skrifandi til að prófarkarlesa vefinn, svona rétt til að vera viss um að það sé allt eins og það á að vera. Reyndar er ég mellufær á sænsku (ef mér leyfist að grípa til þessa gamla frasa) og mér sýnist allt vera með besta móti - en það er betra að vera viss.

Share with friends
Description
Categories
General (43)
Tags
SEO/SEM (7)
sex dating (6)
participant (2)
sharing (2)
sex writer (1)
contributor (1)
chat (1)
observer (1)
See all tags
|
English
Íslenska
Svenska

Comments: 5