Post
Inneignakerfið er komið í endurforritun
Inneignakerfið sem er núna á kanínunni er gamalt og úr sér gengið og ekki þesslegt að við viljum hafa það með okkur inn í framtíðina. Við höfum því ákveðið að endurforrita kerfið frá grunni. Þetta er í sjálfu sér ekkert óskaplega mikið verk eða langvinnt - eins og vefurinn okkar allur þá er inneignakerfið í sjálfu sér afar einfalt - en það sem kemur til með að gerast er að greiðslusaga fram til þess dags sem við setjum nýja kerfið inn verður hreinsuð út og núlluð.
Inneignir munu ekkert breytast - þú munt áfram eiga þína inneign eins og hún er daginn sem við skiptum um kerfi - en greiðslusagan hverfur, og inneignin verður bara skráð sem ein tala, upphafstalan í þinni greiðslusögu.
Við erum byrjuð að skipuleggja flæði nýja kerfisins - þá fleygjum við beinagrindinni á milli okkar í einhverja daga, og svo sest forritarinn niður eina nóttina og hefst handa við að skrifa fyrirbærið. Svo setjum við það inn og gerum allskonar prófanir, og svo virkjum við kerfið.
Mér dettur í hug að það sé mánuður í að nýja kerfið komist í gang - en mér gæti skjátlast, það gæti allt eins gerst seinnipart þessarar viku eða í næstu viku. Maður veit aldrei.
Ég vil ráðleggja þeim sem eiga inneign á kerfinu að taka skjámynd (Print Screen) af reikningsblaðsíðunni sinni og varðveita hana þar til allt er um garð gengið. Við verðum að sjálfsögðu með margfalt backup af öllu græjerínu en þetta er góður viðbótarvarnagli.

Share with friends
Description
Categories
General (43)
Tags
SEO/SEM (7)
sex dating (6)
participant (2)
sharing (2)
sex writer (1)
contributor (1)
chat (1)
observer (1)
See all tags
|
English
Íslenska
Svenska

Comments: 5